480-2900

Gerplustræti 35, Mosfellsbær

Til baka
Fasteignasala / Leitarniðurstöður / Raðnúmer: 686900
Lýsing

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Gerplustræti 35 íb. 106, Mosfellsbæ. Í einkasölu. 

Um er að ræða snyrtilega og vel skipulagða íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stæði í bílageymslu. Að innan skiptist eignin í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu í kjallara. Leyfilegt er að vera með gæludýr í íbúðinni þar sem íbúðin er með sérinngang. Afgirtur sérafnotaflötur fylgir íbúðinni og þar er hellulögð verönd sem snýr í suður. Leyfi og teikningar að skjólveggjum liggja fyrir hjá húsfélagi.  Allar innréttingar í íbúðinni eru frá AXIS. Tvö sameiginleg hleðslustæði eru við húsið. 
 
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísalögð og með góðum skáp. 
Eldhús: Í eldhúsi er hvít innrétting og eyja með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingunni. Viðarparket er á gólfi. 
Stofa: Viðarparket á gólfi og útgengt á hellulagða verönd. 
Baðherbergi: Á baðherberginu sem er flísalagt eru hvítar innréttingar, vaskur, upphengt salerni, walk-in sturta, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hjónaherbergi: Viðarparket er á gólfi og fataskápur. 
Barnaherbergi: Viðarparket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi: Viðarparket á gólfi.
Sér geymsla er í kjallara. 
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði er í lokuðum bílakjallara og er búið að leggja fyrir hleðslustöð að stæðinu. 

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Lánmöguleikar

Um eignina

Tegund: Fjölbýli
Stærð: 100 m2
Herbergi: 4
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Stofur: 1
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2017
Bílskúr/skýli: 0
Fasteignamat: 68.200.000 kr.
Brunabótam: 64.270.000 kr.
Verð: 69.800.000 kr