480-2900

Engjavegur 53, Selfoss

Til baka
Fasteignasala / Leitarniðurstöður / Raðnúmer: 686568
Lýsing

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Engjavegur 53, Selfossi
Um er að ræða vel staðsett 135,1 fm. einbýlishús ásamt 36,6 fm. bílskúr, samtals 171,7 fm.  Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1968 og er múrað og málað að utan.  Bárujárn er á þaki og er það um 30 ára gamalt.
Garðurinn er mjög fallegur og stutt göngufæri er á íþróttasvæði, í skóla og sundlaug.  Að innan er húsið þrjú svefnherbergi (tvö herbergi voru sameinuð í eitt.), stofa, borðstofa, hol, eldhús, baðherbergi, herbergjagangur, þvottahús. forstofa, forstofusnyrting, lítið búr og geymsla.  Parket er á gólfum í stofu, borðstofu,holi og tveimur herbergjanna og herbergjagangi en flísar eru á baði, forstofusnyrtingu og þvottahúsi.  Korkur er á eldhúsi. Í eldhúsinu er hvít upphafleg innrétting.  Á baðinu er hvít innrétting og baðker með sturtu.  Í forstofusnyrtingunni er sturta, vaskur og wc. Fataskápar eru í tveimur herbergjanna sem og forstofu.   Bílskúrinn er 36,6 fm.  Innkeyrsluhurðin er tréflekahurð.  Möl er í innkeyrslu en hellulögn er næst húsinu.  Steypt stétt við útidyr.  Sólpallur er við húsið sunnanvert.

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Lánmöguleikar

Um eignina

Tegund: Einbýli
Stærð: 171 m2
Herbergi: 5
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Stofur: 1
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1968
Bílskúr/skýli: 1
Fasteignamat: 73.700.000 kr.
Brunabótam: 76.350.000 kr.
Verð: 80.000.000 kr