480-2900

Dranghólar 8, Selfoss

Til baka
Fasteignasala / Leitarniðurstöður / Raðnúmer: 681140
Lýsing

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Dranghólar 8, Selfossi. Í einkasölu. 

Um er að ræða fallegt 172,4 fm. einbýlishús ásamt 58,4 fm. sambyggðum bílskúr, samtals 230,8 fm.  Húsið er byggt úr timbri árið 2008 og er klætt að utan með flísum og bárujárn er á þaki.  Að innan er húsið fjögur svefnherbergi (möguleiki á fimmta herberginu), stofa, sjónvarpsherbergi, eldhús,  baðherbergi, forstofa, forstofu snyrting og þvottahús. Flísar er á öllum gólfum með gólfhita. Allar innrétting og innhurðir í húsinu eru sérsmíðaðar frá FAGUS. Aukin lofthæð er í öllu húsinu.  Í eldhúsinu er rúmgóð innrétting með vönduðum tækjum.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er innrétting, handklæðaofn, salerni og walk- inn sturta.  Útgengt er á verönd úr stofu. Fataskápar eru í hjónaherbergjum og öllum barnaherbergjum. Sjónvarpsherbergi er með rennihurð og gengið inn í það af gangi (ekki stofu eins og er skv. teikningu). Þvottahúsið er með hvítri innréttingu.  Innangengt er í bílskúrinn úr forstofunni. Bílskúrinn er meðepoxý á gólfi og álflekahurð með rafmagnsopnara. Innaf bílskúrnum er geymsla og þar er einnig epoxý á gólfi. Yfir stórum hluta húsins er geymsluloft.  Lóðin er þökulögð og þar geymsluskúr.  Við húsið er verönd og er hún gerð með pallettum en lerki er í dekki. Möl er í innkeyrslu en rör fyrir hitalagnir í innkeyrslu eru komnar út úr húsi og lagnir í stétt eru ótengdar.  Á lóðinni er geymsluskúr 4.40 x 3.40 með alusink á þaki og timburklæðning er standandi. Skúrinn stendur á steypum sökkli, með tvöfaldri hurð og óeinangraður.

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Lánmöguleikar

Um eignina

Tegund: Einbýli
Stærð: 230 m2
Herbergi: 6
Svefnherbergi: 5
Baðherbergi: 2
Stofur: 1
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2008
Bílskúr/skýli: 0
Fasteignamat: 107.150.000 kr.
Brunabótam: 108.900.000 kr.
Verð: 116.800.000 kr