480-2900
Prenta síðu

Lögfræðiþjónustan

Lögfræðiþjónusta við fyrirtæki
Þjónusta við fyrirtæki er mikilvægur þáttur í starfsemi okkar. Meðal verkefna okkar á því sviði eru:

  • Stofnun félaga og fyrirtækja
  • Gerð fjármögnunarsamninga
  • Álitsgerðir og almenn ráðgjöf
  • Rekstur mála fyrir úrskurðar- og kærunefndum á stjórnsýslustigi
  • Samingsgerð á sviði verslunar og viðskipta
  • Samingsgerð um stofnun og slit vinnu- og verksamninga
  • Einkaleyfi og vörumerki
  • Aðstoð á sviði umhverfisréttar
  • Aðstoð við endurskipulagningu fjármála, þ.a.m. greiðslustöðvun, nauðasamninga, skuldaskil ofl.
  • Aðstoð á sviði gjaldþrotaréttar
  • Aðstoð við endurfjármögnun, lántökur, veðsetningar ofl.
  • Rekstur skaðabótamála
  • Málflutningur til sóknar og varnar fyrir héraðsdómstólum, Hæstarétti Íslands og gerðardómstólum
  • Verksamningar
  • Höfundarréttarmálefni
  • Innheimta vanskilaskulda og aðstoð við skipulagningu á innheimtuferli innan fyrirtækja

Lögfræðiþjónusta við bændur
Talsverður þáttur í starfsemi okkar er þjónusta við bændur. Dæmi um verkefni á því sviði eru:

  • Aðstoð við bændur vegna ábúðarloka, þ.m.t. hagsmunagæsla vegna úttektar á jörðum
  • Landamerkjamál
  • Hagsmunagæsla vegna eignarnáms
  • Hagsmunagæsla vegna fullvirðisréttar, greiðslumarks og búmarks
  • Gerð byggingarbréfa
  • Hlutafélagavæðing
  • Hagsmunagæsla fyrir eigendur hálendisjarða og annara rétthafa á hálendinu gagnvart óbyggðanefnd


Lögfræðiþjónusta við einstaklinga
Við þjónum einstaklingum á öllum sviðum lögfræðinnar, sem varða persónulega hagsmuni fólks svo sem:

  • Skaðabótamál, uppgjör
  • Gerð kaupmála
  • Gerð erfðaskráa
  • Hjónaskilnaðarmál
  • Slit á óvígðri sambúð
  • Forræðisdeilur
  • Umgengnisréttardeilur
  • Skipti á dánarbúum
  • Aðstoð við skuldaskil
  • Fjármálaleg ráðgjöf af ýmsu tagi t.d. vegna kaupa á fasteignum eða fyrirtækjum
  • Innheimta vanskilaskulda
  • Gerð eignaskiptasamninga í fjöleignahúsum
  • Réttaraðstoð í opinberum málum, réttargæsla við lögreglurannsókn, málsvörn fyrir héraðsdómi og Hæstarétti Íslands.


Lögfræðiþjónusta við húsfélög

Við þjónum húsfélögum við rekstur fjölbýlishúsa:

  • Innheimtur á húsgjöldum ofl.
  • Aðstoð við gerð verksamninga
  • Gerð eignaskiptasamninga
  • Almenn ráðgjöf

Upplýsingar um fyrirtækið