480-2900

Akurgerði 8, Flúðir

Til baka
Fasteignasala / Leitarniðurstöður / Raðnúmer: 639445
Lýsing

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Akurgerði 8, Flúðum. Í einkasölu. 

Um er að ræða vel staðsett 137,4 fm. einbýlishús ásamt 32,2 fm. sambyggðum bílskúr.  Húsið er byggt árið 1976 úr steinsteypu og bílskúrinn einnig.  Að utan er húsið múrað og málað en bárujárn er á þaki. Þak á húsinu er nýtt.   Að innan er húsið fjögur svefnherbergi, stofa, hol, eldhús, baðherbergi, forstofa og þvottahús.  Flísar eru á gólfum á forstofu, baði og þvottahúsi en nýlegt parket á stofu, holi, eldhúsi og herbergjum.   Í eldhúsinu er ný grá  innrétting með nýlegu helluborði og ofni.   Baðherbergið hefur verið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu með glervegg. Útgengt er úr stofunni á sólpall, með heitum potti, sem snýr til suðurs. Ný innrétting er í þvottahúsi.  Bílskúrinn er uppsteyptur,  búið er að eingangra loftið í skúrnum og einnig er ísteyptur gólfhiti. Nýir gluggar og hurðar eru í bílskúr. Innkeyrsluhurð er ný.  Frárennslis- og neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar frá húsi út í götu og samhliða var sett snjóbræðsla í stéttar og bílaplan.
 

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Lánmöguleikar

Um eignina

Tegund: Einbýli
Stærð: 169 m2
Herbergi: 5
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Stofur: 1
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1976
Bílskúr/skýli: 0
Fasteignamat: 46.600.000 kr.
Brunabótam: 72.400.000 kr.
Verð: 76.800.000 kr