Hagi breiðavík lóð 20, 851 Hella
29.800.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
49 m2
29.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1993
Brunabótamat
20.750.000
Fasteignamat
23.600.000

LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900

Hagi Breiðavík lóð 20, Rangárþingi ytra.

Um er að ræða 49,8 fm sumarhús á eignarlóð við Eystra Gíslholtsvatn í Rangárþing ytra. Húsið er byggt árið 1993 úr timbri og er klætt að utan með standandi timburklæðningu en bárujárn er á þaki.  Að innan skiptist húsið í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, stofu og eldhús opið í eitt. Spónaparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi þar er dúkur. Á baðherberginu er sturta, salerni og vaskur. Í eldhúsi er viðarinnrétting. Úr stofu er útgengt á verönd.  Við bústaðinn er verönd með heitum potti.

Lóðin er mjög falleg og með miklum gróðri. Stærð lóðarinnar er 1.200 fm Auk þess er sameiginlegt leiksvæði með leiktækjum og sparkvöllur er á svæðinu.  Eignin er í skipulögðu sumarhúsahverfi sem telur 24 lóðir.  Svæðið er afgirt með læstu hliði.

Silungsveiði er í Eystra Gíslholtsvatni.  Veiðiréttur fylgir í vatninu. Búið er að útbúa litla höfn þar sem gott er að koma bátum út á vatnið. 
 

Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson,  löggiltur fasteignasali í síma  690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma  845-9900, halli@log.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.