LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Suðurbraut 2, Tjarnabyggð, Sveitarfélaginu Árborg. Einkasölu.Um er að ræða 193,5 fm einbýlishús á 15.735 fm eignarlóð í búgarðabyggðinni Tjarnabyggð sem er staðsett rétt utan við Selfoss. Húsið er timburhús byggt árið 2007. Að utan er húsið klætt með áli og harðvið. Á þaki er bárujárn. Bílskúr hefur verið innréttaður sem íbúð en lítið mál er að hafa hann sem bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð en þaðan er innangengt í bílskúr.
Eldhús: Í eldhúsi er svört innrétting með harðparketi á gólfi, útgengt er á baklóð úr eldhúsi.
Stofa: Rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Útgengt á lóð úr stofu.
Herbergi: Harðparket er á gólfi:
Herbergi: Harðparket er á gólfi:
Herbergi: Harðparket er á gólfi:
Hjónaherbergi: með góðum fataskáp en harðparket er á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf en þar er hornbaðker, walk-inn sturta og innrétting með vask.
Bílskúr: er flísalagður og er hann innréttaður sem íbúð. Þar er baðherbergi með sturtu og eldhúsinnrétting með tengi fyrir þvottavél. Bílskúrshurð er til staðar.
Búið er að planta töluvert af trjám í lóðina. Grasflöt með hestagerði er við húsið. Skv. skipulagi er heimilt að byggja allt að 1.500 fm á lóðinni sjá nánar deiliskipulag. Mikið fuglalíf er á svæðinu. Tilvalið fyrir hestafólk, góðar útreiðaleiðir. Ljósleiðari. Eignin er um 4 km fyrir utan Selfoss. Skólaakstur á svæðinu.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is